Leiðtogaþjálfun Dale Carnegie

Ármúli 11

108 Reykjavík

555 7080

upplysingar@dalecarnegie.is

http://www.dalecarnegie.is http://www.naestakynslod.is



Námskeið fyrir 13-15 ára, 16-20 ára og 20-25 ára. Námskeiðin eru í 10 vikur, einu sinni í viku í fjóra tíma í senn (frá kl.17-21 eða 18-22). Einnig bjóðum við upp á tveggja vikna námskeið fyrir 10-12 ára á sumrin kl.9-13.
 
Námskeiðin byggjast upp á fimm markmiðum
1)      Efla sjálfstraust
2)      Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
3)      Árangursrík tjáning
4)      Efla leiðtogahæfileika
5)      Hafa jákvætt viðhorf
 
Þjálfunin byggist upp á hvatningu, hrósi og jákvæðni. Jákvæð hvatning hefur góð áhrif á fólk sem er að læra nýja hluti og hjálpar þeim að ná árangri í lífinu.


Aðildarfélag Tegund
Leiðtogaþjálfun Dale Carnegie Dale Carnegie – námskeið fyrir ungt fólk
Leiðtogaþjálfun Dale Carnegie Leiðtogaþjálfun Dale Carnegie Leiðtogaþjálfun Dale Carnegie

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai