Leynileikhúsið

Grettisgata 81

101 Reykjavík

551 1742, 864 9373

info@leynileikhusid.is

http://www.leynileikhusid.is



Öll leiklistarnámskeið Leynileikhússins byggjast fyrst og fremst upp á mottóinu „GLEÐI“. Þetta þýðir að öll kennsla og sem fer fram í leiklistartímanum er gerð á uppbyggilegan og jákvæðan hátt að hálfu kennara og samnemenda. Með þetta mottó að leiðarljósi fara nemendur í grunnatriði í leiklist með hjálp leikja. Farið er í mikilvæg atriði eins og einbeitingu, gefa skýr skilaboð, hlustun, samvinnu og leiklistarsköpun. Þegar líða tekur á námskeiðið eru þessi grunnatriði færð yfir í spunavinnu sem á endanum skilar sér í lokasýningu sem nemendur sýna fyrir aðstandendur. Lokasýningin er því byggð upp nær alfarið á spuna og sköpunarkrafti nemenda sem kennari aðstoðar við að púsla saman í leikverk þar sem allir fá að njóta sín á sinn hátt.

Framhaldsnámskeið Leynileikhússins eru byggð upp á sama hátt en þau eru miðuð við að nemendur hafa farið á a.m.k. tvö almenn leiklistarnámskeið. Farið er dýpra í leiklistarvinnuna, persónusköpun og tæknileg atriði. Á meðan almennu námskeiðin eru 12 klst í kennslu eru framhaldsnámskeiðin 18 klst.
 
Leynileikhúsið er með aðsetur í eftirfarandi skólum
 
Kársnesskóli Kópavogi
Seljaskóli
Selásskóli
Rimaskóli
Lágafellsskóli Mosfellsbæ
Vesturbæjarskóli
Langholtsskóli
Flataskóli Garðabæ
Grunnskóli Seltjarnarness
 
Athugið að nemendur þurfa ekki að stunda nám við viðkomandi skóla til að geta farið á leiklistarnámskeið hjá Leynileikhúsinu.
 
Við erum lítið fyrirtæki sem er með það markmið að efla leiklistarkennslu fyrir börn og unglinga á landinu og gefa eins mörgum og kostur er færi á að læra leiklist. Leynileikhúsið vinnur náið með grunnskólum og foreldrafélögum þeirra og eins og stendur starfar fyrirtækið í níu skólum á öllu höfuðborgarsvæðinu. Allir kennarar Leynileikhússins eru fagmenntaðir leikarar sem hafa góða reynslu af leiklistarkennslu.
 
Fyrir allar frekari upplýsingar farið á www.leynileikhusid.is

 



Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai