Listdansskóli Íslands - Dansmennt

Engjateigur 1

105 Reykjavík

588 9188

listdans@listdans.is

http://www.listdans.is



GÆÐI,ÞEKKING, REYNSLA í fyrirrúmi.
Listdansinn er og hefur alla tíð verið, heilbrigða útrás fyrir líkama, anda og sál og því hentar listdansinn í raun fyrir alla. Við Lisdansskóla Íslands starfar úrvalslið sem hefur mikla þekkingu á dansi og eru gæðin höfð að leiðarljósi.  Í skólanum ríkir sú viðleitni að halda ástríðunni fyrir listdansinum lifandi.
Aðalnámsgreinar skólans eru samkvæmt kröfum aðalnámskrár menntamálaráðuneytisins á grunn- og framhaldsstigi: klassískur ballett, táskór, repertoire, pas de deux, nútímalistdans, spuni og snertispuni, jass (funk, söngleikjadans), danssmíði, kóreografía o.fl.

Nám í Listdansskóla Íslands hefur fyrst og fremst það markmið að mennta framtíðarlistdansara og nemendur sem vilja halda námi áfram á háskólastigi. Einnig er mikilvægt að þjálfa einnig nemendur sem stunda nám sér til ánægju. Nemendum er veitt kennsla í tæknilegum og listrænum greinum, skapandi færni og þeir fá mörg tækifæri til að njóta sín á danssýningum. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum. Einnig er rík áhersla lögð á samvinnu með öðrum. Nemendur læra að njóta lista, menningar og sögu listdansins í gegnum námið.
Listdansskóli Íslands er til húsa á Engjateigi 1, Reykjavik, undir sama þaki og Tónskóli Sigursveins. Það er hægt að fá nánari upplýsingar um skólann. 

Listdansskólinn er með sérstök inntökupróf á vorin inn í grunnskóla- og framhaldsdeildina. Þau eru auglýst sérstaklega.  Athugið að fram til 19.september er í gangi prufutímar fyrir 9 ára börn, stráka og stelpur, fædd 2000. Kennslustundir eru 3x í viku og eru á þriðjudögum kl. 16:30, fimmtudögum kl. 17:30 og laugardögum kl. 11:30.  


Listdansskóli Íslands - Dansmennt Listdansskóli Íslands - Dansmennt Listdansskóli Íslands - Dansmennt

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai