Dansskóli Jóns Péturs og Köru

Valsheimilinu Hlíðarenda

101 Reykjavík

553 6645

dans@dansskoli.is

http://dansskoli.is



Dansskóli Jóns Péturs og Köru 20ára

Dansskóli Jóns Péturs og Köru var stofnaður 28. ágúst árið 1989 og fagnar því 20 ára afmæli í haust. Dansskólinn hefur flutt sig um set og er kominn í Valsheimilið að Hlíðarenda. Kennt verður í þremur glæsilegum sölum sem þar eru til húsa. Nú fer haustönnin að fara af stað og hefst kennsla laugardaginn 12. september. 

Dansskóli Jóns Péturs og Köru býður upp á fjölbreytt námskeið og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Það nýjasta sem boðið verður uppá er námskeið í Michael Jackson dönsum. Kenndir verða dansar við vinsælustu lög hans. Einnig verður í fyrsta skipti boðið upp á námskeið fyrir 3 ára börn. Sama gjaldskrá gildir frá síðasta vetri en í tilefni af afmælinu verður veittur 10% afsáttur af öllum námskeiðum skólans.

Innritun er hafin og fer fram á heimasíðu dansskólans www.dansskoli.is
Afmælisfagnaður skólans verður haldinn í húsakynnum skólans sunnudaginn 13. september kl. 15-17.


Aðildarfélag Tegund
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Dans söngur og leikur fyrir 3 ára
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Dans fyrir 4 -5 ára
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Börn 6-9 ára byrjendur
Dansskóli Jóns Péturs og Köru 10 ára og eldri byrjendur
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Börn og unglingar framhald
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Michael Jackson dansar
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Freestyle
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Jazz
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Hiphop
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Break
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Salsa
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Sér hópar
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Stuð fyrir hópinn
Dansskóli Jóns Péturs og Köru Dansskóli Jóns Péturs og Köru Dansskóli Jóns Péturs og Köru

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai