Karatefélagið Þórshamar

Brautarholt 22

105 Reykjavík

551 4003

thorshamar@thorshamar.is

http://www.thorshamar.is



Karatefélagið Þórshamar býður upp æfingar í hefðbundnu Shotokan Karate og einnig er karate iðkað sem keppnisíþrótt.  Æfingar fara fram í rúmgóðum sal félagsins að Brautarholti 22.  Skipt er í þrjá aldurshópa, 6-9 ára, 10-13 ára og 14 ára og eldri.  Allir hópar nema byrjendahópar barna og unglinga æfa amk. þrisvar í viku og einnig er boðið upp á sérstakar æfingabúðir amk. þrisvar á hverjum vetri. 

Skráning á námskeið fer fram:
- á vef Þórshamars, www.thorshamar.is
- í síma 5514003
- í tölvupósti á thorshamar@thorshamar.is
- í afgreiðslu félagsins á opnunartíma. Afgreiðsla félagsins er opin alla virka daga kl. 17-20 og á laugardögum kl. 10-14 og þar má m.a. kaupa galla og annan búnað fyrir karateiðkendur og keppendur.


Aðildarfélag Tegund
Karatefélagið Þórshamar Karateæfingar
Þórshamar Þórshamar

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai