Íþróttafélagið Leiknir

Austurberg 1

111 Reykjavík

557 8050

leiknir@leiknir.com

http://www.leiknir.com



Íþróttafélagið Leiknir býður uppá knattspyrnu barna allt frá 8.flokki(börn á forskólaaldri) og uppí afreksstefnu (mfl karla). Leikir, skemmtun og framfarir eru mottóið okkar. Börn læra að vinna saman í hópum, kynnast nýjum félögum og þroskast andlega sem og líkamlega. Æfingar eru allt árið um kring og starfið afar blómlegt. Æfingar yngstu barnanna eru blandaðar, strákar og stelpur æfa saman en strax og börnin eru komin á grunnskólaaldur æfa strákar og stelpur sér.

Hvetjum við stelpur jafnt sem stráka til að koma og prufa fótboltann hjá okkur og upplifa öll þau ævintýri sem hverfisfélagið þitt hefur að bjóða.


Aðildarfélag Tegund
Íþróttafélagið Leiknir Knattspyrna
Íþróttafélagið Leiknir Íþróttafélagið Leiknir Íþróttafélagið Leiknir

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai