Ad astra

Logafold 83

112 Reykjavík

848 1265

fyrirspurnir@adastra.is

http://adastra.is



Ad Astra veitir bráðgerum og námsfúsum börnum í 6.-10. bekkjum grunnskóla verkefni við hæfi sem eru sniðin að þörfum þeirra og áhuga. Starfsemi Ad Astra heldur margvíslegra námskeið þar sem börnum stendur til boða að læra undirstöðuatriði ákveðinnar námsgreinar í skapandi umhverfi undir handleiðslu háskólakennara ásamt öðrum börnum sem deila sama áhuga.
 
Fyrir hverja?
Námskeið Ad Astra eru ætluð grunnskólanemendum í 6.-10. bekkjum sem sækjast eftir meiri námslegum áskorunum en gengur og gerist en öll börn sem hafa áhuga á krefjandi viðbótarnámi eru velkomin á námskeiðin okkar. Engar sérstakar kröfur eru gerðar um námsárangur eða einkunnir. 

Næstu námskeið hefjast laugardaginn 3. október og standa til 7. nóvember en um er að ræða 6 laugardaga og kennt er í 90 mínútur í senn. Hægt er að velja eitt eða tvö námskeið. Opnað verður fyrir skráningu á heimasíðunni www.adastra.is 12. september.


Aðildarfélag Tegund
Ad astra Fjölbreytt námskeið fyrir bráðger börn

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai