Keilufélag Reykjavíkur

Berjarima 65

112 Reykjavík

587 5885

kfr@kfr.is

http://www.kfr.is



Keiluæfingar eru fyrir alla frá 8 ára og eldri. Æfingar hefjast 7. september á haustönn og 4. janúar á vorönn.  Æfingar fara fram í Keiluhöllinni, Öskjuhlíð.  Æft er á þriðjudögum og fimmtudögum og byrja æfingar kl. 17:00. Hver æfing er 90 mínútur. 

Einnig verða æfingar fyrir fullorðna og eru þær á sömu dögum milli kl. 18:00 og 19:00.

Þjálfari er Theódóra Ólafsdóttir og veitir hún nánari upplýsingar (661-9585)..

SKRÁNING
Nóg er að mæta á æfingu og þjálfari tekur við skráningu.  Einnig er hægt að hafa samband við þjálfara í 661-9585


Aðildarfélag Tegund
Keilufélag Reykjavíkur Keiluæfingar

Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai