Spurt og svarað
Frístundakortið er styrkjakerfi vegna tómstunda barna og unglinga 6 til 18 ára með lögheimili í Reykjavík. Styrkinn er hægt að nýta til að greiða niður hluta þátttöku- og æfingagjalda í skipulögðu tómstundastarfi. Ekki er um beingreiðslu að ræða, en foreldrar geta ráðstafað ákveðinni upphæð til félags og er það gert með rafrænum hætti í Rafrænu Reykjavík.
Ekki þarf að sækja sérstaklega um Frístundakortið en styrkinn er að finna í Rafrænu Reykjavík undir kennitölu forráðamanns með sama lögheimili og barnið. Þar er hægt að ráðstafa honum til aðildarfélags. Um aðstoð við innskráningu í Rafræna Reykjavík sér Símaver borgarinnar í síma 411-1111. Einnig er hægt að fá aðstoð við að ráðstafa á þjónustumiðstöðvum í hverfum borgarinnar og þá þarf eingöngu að sýna skilríki.
Styrkurinn er kr. 25.000 á hvert barn á ári.
Styrkurinn er fyrir 6-18 ára börn sem hafa lögheimili í Reykjavík. Miðað er við fæðingarár barnanna. Árið 2007 eru þetta börn fædd 1989-2001, árið 2008 fyrir þá sem fæddir eru á árunum 1990-2002 og árið 2009 geta þeir sem fæddir eru á árunum 1991-2003 nýtt sér Frístundkortið. Styrkurinn gildir frá 1. janúar það ár sem barnið verður 6 ára og til áramóta það ár sem barnið verður 18 ára.
Já, hægt er að greiða dvöl á Frístundaheimilum ÍTR með Frístundakorti?
Starf í félagsmiðstöðvum er niðurgreitt af ÍTR og kostar í flestum tilfellum ekkert. Sé um gjaldtöku að ræða er ekki hægt að greiða þann kostnað með Frístundakorti.
Séu báðir foreldrar með sama lögheimili og barnið og sama fjölskyldunúmer í þjóðskrá geta þeir báðir ráðstafað. Sé um sameinginlegt forræði að ræða getur eingöngu það foreldri sem er með sama lögheimili og barnið ráðstafað.
Það er í höndum hvers aðildarfélags fyrir sig að ákveða hvenær lokadagur ráðstöfunar er hjá félaginu á hverri önn. Það er því mikilvægt fyrir forráðamenn að kynna sér hvernig innheimtu er háttað hjá félaginu og hvenær síðasti ráðstöfunardagur er hjá því.
Ástæðurnar geta verið að félagið sé búið að loka fyrir ráðstöfun á tímabilinu eða nýtt tímabil sé hafið og búið að loka fyrir ráðstöfun fyrri tímabila. Félögum er heimilt að ákvarða sjálf lokadag ráðstöfunar á hverju tímabili svo hægt sé að ganga frá innheimtu eftirstöðva séu þær einhverjar. Best er að hafa samband við félagið til að spyrjast fyrir um ráðstöfun og innheimtu hjá því.
Ástæðurnar geta verið að barnið sé ekki skráð með sama lögheimili og foreldri. Sé um sameiginlegt forræði að ræða birtist nafn barns hjá því foreldri sem er skráð með sama lögheimili og sama fjölskyldunúmer í þjóðskrá. Ástæðan getur einnig verið að ekki sé búið að ganga frá breytingum í þjóðskrá sé viðkomandi að flytja til landsins eða að breytingar hafi orðið á fjölskylduhögum s.s. missir maka. Sé barnið orðið 18 ára er það komið með sérstakt fjölskyldunúmer og þarf því að skrá sig í Rafræna Reykjavík á sinni eigin kennitölu. Sé um flutning erlendis frá að ræða þarf að hafa samband við þjóðskrá. Sé um missi maka að ræða þarf að hafa samband við verkefnastjóra Frístundakorts eða Rafrænnar Reykjavíkur.
Styrkurinn er eyrnamerktur hverju barni og því ekki hægt að nýta hann á milli systkina.
Sé félagið, sem barnið stundar sína tómstund hjá, aðili að Frístundakorti ÍTR, hvort sem er í Reykjavík eða nágrannasveitafélagi, er hægt að nýta Frístundakrotið hjá viðkomandi félagi. Aðildarfélög Frístundakortsins.
Styrkhæf námskeið þurfa að vera 10 vikur að lágmarkið á sama tímabili.
Ráðstafa má styrknum á þrjú námskeið á hverju tímabili.
Tímabilin eru þrjú yfir árið. Vorönn 1. janúar til 31. maí, sumarönn 1. júní til 31. ágúst og haustönn 1. september til 31. desember.
Styrkurinn færist sjálfkrafa á milli tímabila sé hann ekki allur nýttur á sama tímabilinu. Hann færist hins vegar ekki á milli ára og fellur niður um áramót sé hann ekki nýttur.
Styrkurinn færist ekki á milli ára. Eftirstöðvar af styrknum falla niður um áramót.
Ástæðurnar geta verið að félagið sé ekki búið að skrá barnið í Frístundakortskerfið og þurfa forráðamenn að hafa samband við félagið. Námskeiðið uppfyllir ekki reglur og skilyrði Frístundakortsins og er því ekki styrkhæft. Félagið sem barnið stundar sína tómstund hjá er ekki aðili að Frístundakortinu.
Ástæðurnar geta verið þær að félagið hafi ekki sótt um aðild eða að það uppfylli ekki reglur og skilyrði Frístundakortsins.
Hjá þeim félögum sem innheimta allt gjaldið vegna skólaársins á haustönn og ekkert gjald er innheimt á vorönn birtist gjaldið sem kr. 0 á þeirri önn sem ekkert er innheimt.
Ástæðan getur verið að búið sé að loka fyrir ráðstöfun á þeirri önn, ýmist hjá félagi eða að önnin sé liðin og ekki lengur hægt að ráðstafa vegna þeirrar annar.
Ástæðan getur verið að búið sé að ráðstafa á viðkomandi námskeið eða að slegin hafi verið inn hærri upphæð en námskeiðið kostar.
Skráningar fara fram hjá viðkomandi félögum eða Frístundamiðstöðvum. Hægt er að nálgast símanúmer, netföng og vefföng með því að smella á viðkomandi aðila á forsíðu vetrarvefsins.
Í Frístundamiðstöðinni Kringlumýri er í boði tómstundastarf fyrir fatlaða. Nánari upplýsingar í frístundamiðstöðinni í síma 411 5400 eða á kringlumyri@itr.is.