VERTU KLÁR – Stór og smár
VERTU KLÁR – Stór og smár með Íslenska Hestinum, eru reiðhópar þar sem kynslóðirnar koma saman. Fyrir þá fjölmörgu sem ekki hafa aðgang að hestum en langar engu að síður að stunda hestamennsku í skemmtilegum hópi. Farið verður í reiðtúra frá fyrsta degi og er því mikilvægt að þátttakendur hafi einhverja reynslu af hestamennsku.
Útreiðartúrar þar sem kynslóðir mætast. Fyrir fullorðna og reiðvant yngra fólk (börn og unglingar) – farið er í útreiðartúra um Hólmsheiði, Rauðhóla og Rauðavatn.
Íslenski Hesturinn skaffar hesta, reiðtygi og hjálma.
VERTU KLÁR OG VERTU MEÐ:
VERTU KLÁR – Stór og smár fer í gang miðvikudaginn 12. október klukkan 16:15 og stendur yfir í 9 vikur til 7. desember. Hóparnir standa yfir í u.þ.b. 2 tíma. VERTU KLÁR – Stór og smár – Skráning hafin.
Verð: 35.500,-
10% fjölskylduafsláttur ef 2 eða fleiri úr sömu fjölskyldu koma saman.
Hópstjóri er leiðsögumaðurinn og hestakonan Bergljót Rist sem mun taka vel á móti öllum því hennar uppáhald er skemmtilegt fólk, góðir hestar og útreiðartúrar í fallegu umhverfi. Hluti af vetrarstarfi ÍTR.
Skráning á netfang info@islenskihesturinn.is eða í síma 434 7979
Verð
35.500 veittur er 10% fjölskylduafsláttur ef 2 eða fleirri úr sömu fjölskyldu koma saman.