Dale Carnegie – námskeið fyrir ungt fólk

Námskeið fyrir 10-12 ára, 13-15 ára, 16-20 ára og 20-25 ára. Námskeiðin eru í 10 vikur, einu sinni í viku í fjóra tíma í senn (frá kl.17-21 eða 18-22)

Námskeiðin byggjast upp á fimm markmiðum:
1) Efla sjálfstraustið
2) Bæta hæfni í mannlegum samskiptum
3) Efla tjáningarhæfileikana
4) Þróa leiðtogahæfileika
5) Bæta lífsviðhorf okkar

Þjálfunin byggist upp á hvatningu, hrósi og jákvæðni. Jákvæð hvatning hefur góð áhrif á fólk sem er að læra nýja hluti og hjálpar þeim að ná tímamótaárangri í lífinu

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru í síma 555-7080 eða á heimasíðunni www.naestakynslod.is

Skráning

Skráðu þig núna í síma 555-7080

Verð

Kr.84.900


Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai