Haustæfingar 8-12 ára

Í vetur heldur Klifurhúsið æfingar í klifri fyrir aldurshópana 8-10 ára (fæðingarár frá 2002) og 11-12 ára.
Æfingarnar eru einu sinni í viku. Þær hefjast föstudaginn 10. september og standa út nóvember mánuð:
8-10 ára á föstudögum á frá kl. 16:30-17:30.
11-12 ára á föstudögum á frá kl. 18-19:30.
Að auki fá 8-12 ára að klifra frítt um helgar í Klifurhúsinu í umsjá foreldra.
Þjálfarar verða Hjalti Rafn og  Ásrún Mjöll.

Tekið er við skráningu og fyrirspurnum í gegnum tölvupóst: Hjalti@klifurhusid.is.

Æfingagjald er 11.000 kr. Þeir sem eru með ársæfingakort fá að taka þátt í æfingum endurgjaldslaust. Veittur er 20% systkinaafsláttur. Einnig er hægt að nota frístundakortið til þess að greiða æfingagjald.

Nánari upplýsingar

Á www.klifurhusid.is
klifurhusid@klifurhusid.is
og í síma 553 9455

Skráning

Á www.klifurhusid.is
klifurhusid@klifurhusid.is
og í síma 553 9455

Verð

kr. 11.000. Þeir sem eru með ársæfingakort æfa frítt.
20% systkinaafsláttur


Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai