Ballett 16 ára og eldri

Farið er yfir undirstöðuatriðin í ballett í bland við leiki, sem ýta undir sköpunarþörf barnsins. Fljótlega kemur í ljós hjá ungum börnum hvort tónlist og dans sé ríkur þáttur í eðli þeirra. Þessa hæfileika er afar mikilvægt að rækta hjá hverju barni. Í tímum læra börn að hlusta á tónlist og eru æfð í að uppgötva og skynja samhengið milli, hreyfingar, dans, takst og tónlistar.  Farið er yfir létt spor og leikgleðinni leyft að njóta sín.  Einnig er lögð rík áhersla á einbeitingu, athygli og aga.

Aldur: 3-4 ára, 5-6 ára, 7-9 ára. Eldri hópar – 16 ára og eldri

Einnig er kenndur ballet fyrir eldri hópa þar sem farið er í undirstöðuatriðin og skerpt á tækni. Tilvalið fyrir þá sem vilja prufa ballettinn og þá sem vilja bæta við sig í undirstöðuatriðum í dansi.

Sjá stundaskrá og kennara á www.dancecenter.is

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar á www.dancecenter.is
dancecenter@dancecenter.is og í síma 861 5658.

Skráning

Á www.dancecenter.is

Verð

Sjá nánar á www.dancecenter.is


Upplýsingaveita fyrir borgarbúa

ÍTR hefur nú aðgengilegar, á einum stað, upplýsingar um íþrótta- og tómstundastarf fyrir 6-18 ára börn og unglinga í Reykjavík. Margir borgarbúar þekkja Sumarvef ÍTR og er Vetrarvefurinn með sama sniði þar sem hægt er að leita að íþrótta- og/eða tómstundastarfi eftir tímabilum, aldri, hverfum og efnisflokkum. Vetrarvefurinn er hins vegar eingöngu upplýsingavefur en skráningar fara fram hjá viðkomandi félagi.

Á vefnum er að finna alla aðila að Frístundakorti ÍTR ásamt frístundamiðstöðvum borgarinnar. Það er valkvætt fyrir félög að senda inn upplýsingar á vefinn og því er ekki að finna ítarlegar upplýsingar um öll félög en í flestum tilfellum er hægt að finna vefföng, netföng og símanúmer. Það er von okkar að þetta verði til þæginda fyrir alla borgarbúa og fyrir félög til að kynna sína starfsemi.

Leit

Tímabil:
Aldur:
Hverfi:
Efnisflokkar:



Túngumál

  • English
  • Español
  • Polski
  • Thai